Gunnar og Björn Ívar fyrir utan Litla Hraun í dag.

Íslenskri fangar á Litla Hrauni tóku þátt á alþjóðlegu móti fanga í dag. Þetta er í fjórða skipti sem mótið fer fram en í fyrsta skipti sem Ísland tók þátt. Teflt var í gegnum Chess.com. Yfir 50 þjóðir tóku þátt frá öllum heimsálfum.

Íslenska liðið endaði í sjötta sæti í sínum riðli og var töluvert frá því að komast áfram í úrslit þrátt fyrir góð tilþrif á köflum.

Skáksamband Íslands aðstoðaði við framkvæmdina sem var í góðu samstarfi við fangelsismálayfirvöld og Litla Hraun. Björn Ívar, skólastjóri Skákskólans, lét sig ekki vanta og fór yfir skákirnar með keppendum og sýndi hvar hefði mátt gera betur á milli umferða.

Mótið á Chess-Results. 

- Auglýsing -