
Íslandsmeistarar Fjölnis unnu allar viðureignir sínar í efstu deild Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í Rimaskóla í Reykjavík um síðustu helgi og hefur sveitin hlotið 10 stig og 29 v. af 40 mögulegum eftir fyrri umferð keppninnar. Í 2. sæti kemur TR með 7 stig og í 3. sæti skákdeild KR með 6 stig. Alls tefla sex lið í efstu deild en mótið fer fram í fimm deildum.
Íslandsmót skákfélaga er stærsta innlenda skákmótið en liðin eru 50 ár síðan fyrsta Íslandsmótið fór fram en haustið 1974 flaug sveit Taflfélags Reykjavíkur norður og atti kappi við Skákfélag Akureyrar á 10 borðum. Mikil breyting hefur orðið á keppninni síðan. Þó að Íslandsmótið sé fyrst og fremst liðakeppni snýst mótið einnig um einstaklingsframmistöðu. Fjölmargir voru að ná góðum úrslitum í efstu deild og þrír þaulsætnir keppendur náðu að vinna allar skákir sínar. Dagur Arngrímsson, sem teflir fremur lítið, hlaut 5 vinninga af 5 mögulegum fyrir skákdeild KR. Margeir Pétursson tefldi fjórar skákir fyrir TR og vann þær allar. Þá eru ótaldir þeir fjölmörgu í neðri deildunum sem voru með fullt hús eftir helgina. Og ekki hefur það verið leiðinlegt fyrir liðsstjóra Fjölnis, Helga Árnason, að fylgjast með gömlum nemanda Rimaskóla vinna allar skákir fimm sínar í efstu deild. Lítum á eina sigurskák hans:
Oliver Aron Jóhannesson (Fjölnir) – Benedikt Briem (Breiðablik)
Katalónsk byrjun
1. Rf3 d5 2. g3 Rf6 3. Bg2 c5 4. 0-0 Rc6 5. d4 e6 6. c4 dxc4 7. Da4 Bd7 8. Dxc4 b5 9. Dd3 c4 10. Dc2 Hc8 11. e4 Be7 12. a3?!
Upp er komin staða sem er vel þekkt meðal yngri skákmanna okkar. Eins og Oliver Aron teflir þetta jafnar svartur taflið án mikilla erfiðleika. Þessi leikur hindrar – Rb4 en veikir hins vegar b3-reitinn.
12. … Ra5 13. Rc3 Rb3 14. Hb1 a5 15. d5 b4 16. dxe6 Bxe6?
Ónákvæmni því svartur missir tökin á d5-reitnum. Mun betra var 16. … fxe6 og svarta staðan er betri.
17. Hd1 Db6 18. axb4 axb4 19. Rd5 Bxd5 20. exd5 0-0 21. Bg5 h6 22. d6 hxg5 23. dxe7 Hfe8 24. Rxg5 Hxe7 25. Bd5 Rd4 26. Dg6
Hér á svartur góðan varnarleik, 26. … Hf8 sem hótar 27. … c3.
26. … Re6 27. Df5 Dc5?
Nauðsynlegt var 27. … Hc5! og staðan er jöfn.
28. Bxe6! fxe6
29. Hd8+! He8 30. Hxe8+ Rxe8 31. Dh7+
– og svartur gafst upp.
Liðsmenn Íslands í opnum flokki Ólympíumótsins í Búdapest áttu stundum í basli en Hannes Hlífar og Hilmir Freyr komust best þeirra frá mótinu. Það blés þó ekki byrlega fyrir Hilmi Frey í viðureign Blika við skákdeild KR. Hann var um tíma þremur peðum undir í biskupaendatafli en klóraði sig út úr vandræðunum. Það saxaðist á tíma beggja og svo kom þessi staða upp:
Vladislav Larkin (KR) – Hilmir Freyr Heimisson (Breiðablik)
Síðasti leikur svarts var 58 … Bc5-e3! sem hindrar för kóngsins. Nú verður hvítur að láta láta peð af hendi og leika 59. b6 og staðan er jafntefli eftir 59. … Bxb6 60. Kc1 o.s.frv.
59. Bd6?? Kxc3 60. Ke2 Bd4 61. Bc7 Kc4?
Ónákvæmni. Svartur vinnur eftir 61. … a3 62. b6 a2 63. b7 a1(D) 64. b8(D) Da2+ 65. Kf3 Dd5+! o.s.frv.
62. b6 a3 63. b7 Ba7 64. b8(D)??
Hann sá ekki 65. leik svarts. Flestir aðrir leikir halda jafntefli.
64. … Bxb8 65. Bxb8
65. … Kd5! 66. Ke3 a2 67. Kf4 a1(D) 68. Kg5 Ke6 69. Bf4 Df6+
– og hvítur gafst upp.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 12. október 2024















