Stórmeistarinn og Íslandsmeistarin Helgi Áss Grétarsson (2452) gerði jafntefli í lokaumferð á alþjóðlegu móti á Spáni, Colonia Sant Jordi.
Í IM-flokknum skildu þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346) jafnir í innbyrðisviðureign. Ein skák er enn eftir í þeirra flokki sem lýkur á morgun.
GM-flokkur
Skák Helga í lokaumferðinni var í Pirc-vörn. Helgi náði að leysa flest vandamál svörtu stöðunnar ansi skemmtilega í byrjuninni.
9…Rd5! jafnar taflið og gefur svörtum smá frumkvæði vegna leppunar á e-línunni.
Eftir baráttu í miðtaflinu einfaldaðist taflið full mikið og jafntefli varð niðurstaðan.
Helgi lauk leik með 5,5 vinning af 9 mögulegum sem skilaði öðru sæti í flokknum á eftir Harry Grieve og 3,3 elóstigum í plús.
IM-flokkur
Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Dagur Ragnarsson mættust innbyrðis. Stutt jafntefli varð niðurstaðan.
Eftir átta umferðir hefur Aleksandr 6 vinninga og Dagur er með 5 vinninga.
Taflmennska heldur áfram á morgun í IM flokki en Helgi hefur lokið leik eins og áður hefur komið fram.


















