Úrslitakeppni haustmóts Skákfélags Akureyrar lauk fyrir skemmstu.

Svo fór að Markús Orri Óskarsson og Áskell Örn Kárason komu jafnir í mark með 4 vinninga í 5 skákum. Markús vann Áskel í fyrstu umferð en missti niður tvær skákir í jafntefli – gegn Smára Ólafssyni og Stefáni G. Jónssyni á meðan Áskell vann rest. Smári fékk bronsið.

Lokastaðan á Chess-Results

Áskell vann svo Markús Orra í úrslitaeinvígi.

Áskell er í miklu stuði þessa dagana því í kjölfarið vann Hausthraðskákmótið með fullu húsi – 13 af 13! Markús annar með 12 vinninga og Sigurður Eiríksson þriðji með 10 vinninga.

Lokastaðan á Chess-Results

 

- Auglýsing -