Dagur Ragnarsson, nýbakaður Íslandsmeistari í atskák og Skákmeistari Reykjavíkur 2024 var kjörinn íþróttamaður Fjölnis 2024. Hin efnilega skákkona Emilía Embla B. Berglindardóttir var við sama tækifæri valin skákkona Fjölnis.

Þetta var kunngjört á Uppskeruhátíð Umf. Fjölnis sem haldin var í Keiluhöllinni í Egilshöll. Í umsögn skákdeildar um Dag kom fram m.a.

„Dagur hóf árið með þátttöku á Meistaramóti Reykjavíkur þar sem hann sigraði mótið með 8 vinninga af 9 mögulegum og hlaut titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2024. Nú í lok ársins varð hann einnig Skákmeistari Garðabæjar. Skáksveit Fjölnis varð Íslandsmeistari skákfélaga árið 2024 í fyrsta sinn á 20 ára afmælisári. Dagur Ragnarsson var einn af lykilmönnum sveitarinnar. Fjölnir vann allar 10 viðureignir Úrvalsdeildar 2023 – 2024 eitthvað sem aldrei hafði áður gerst. 

Önnur afrek Dags á sviði skáklistarinnar á árinu 2024 eru sigur á Boðsmóti TR, sigur á maímótaröð TR og TG og nú síðast sigur ásamt 4 öðrum skákmönnum á alþjóðlega skákmótinu „Amsterdam Open A flokki“ nú í október. 

Dagur hefur ávallt teflt undir merkjum Skákdeildar Fjölnis og áður með skáksveitum Rimaskóla sem vann NM grunnskólasveita þrívegis á þeim tíma sem Dagur Ragnarsson var í sveitinni.“

Í umsögn um Emilíu Emblu sagði m.a.

„Emilía Embla er án efa ein efnilegasta skákkona landsins meðal stúlkna í barna-og unglingaflokki. Á árinu hefur Emilía Embla verið einn af fulltrúum Íslands á Norðurlandamóti stúlkna og Evrópumóti ungmenna sem haldið var í Prag í ágúst. 

Emilía Embla er afar virk og sigursæl skákkona. Hún hefur verið efst stúlkna á öllum Bikarsyrpumótum TR sem hún hefur tekið þátt í, vann fyrsta mótið af 5 fyrirhuguðum bikarsyrpumótum Skáksambandsins stúlkur nú í byrjun nóvember og leiðir stúlknasveitir Rimaskóla sem eru Íslandsmeistarar grunnskóla. Emilía Embla er fyrirmynd allra þeirra fjölmörgu stúlkna sem sækja skákæfingar Skákdeildar Fjölnis alla fimmtudaga.“

- Auglýsing -