Jón Kristinn varð skák- og hraðskákmeistari Norðlendinga 2019. Mynd: Sigurður Arnarson.

Jón Kristinn Þorgeirsson (Jokkó) var krýndur „Jólasveinn SA“ eftir magnaðan sigur á Jólahraðskákmóti SA sem fram fór í Lyst í Lystigarðinum. Keppendur urðu um 20 talsins og mótið mjög sterkt með fjölda titilhafa!

Jólasteikin virðist hafa farið vel í Jokkó en þá að hann fékk ryksugu í jólagjöf því hann gjörsamlega hreinsaði allt sem var sett fyrir framan hann og kom í mark með 9 vinninga af 9 mögulegum, magnaður árangur!

FIDE-meistarinn Rúnar Sigurpálsson endaði í öðru sæti með 6,5 vinning og FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson ásamt Kandídatameistaranum Halldóri Brynjari Halldórssyni komu næstir með 6 vinninga.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -