Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

Blikarnir þrír Vignir Vatnar, Davíð Kolka og Benedikt Briem luku í dag taflmennsku á Hastings á Englandi. Síðustu tvær umferðirnar gengu ekki nógu vel og tap hjá Vigni í 8. umferðinni kostaði hann mikið í toppbaráttunni. Heilt yfir var mótið þó gott og þeir Davíð og Benedikt náðu sér í vænan stigagróða.

Vignir tapaði í 8. umferð gegn Danny Gormally og toppbaráttu hans lauk þarmeð. Vignir beitti Alapin gegn sikileyjarvörn en skákin var illa útfærð, lynkulegir leikir snemma úr byrjuninni hjá Vigni og sá enski nýtti sér það og hreinlega slátraði okkar manni.

Davíð Kolka tapaði sinni skák gegn IM Arthur Lucas (2328) frakkinn yfirspilaði caro-kann vörn Kolka sannfærandi.

Benedikt náði að yfirspila 1900-stiga Kóreumann í miðtaflinu.

Vignir rétti úr kútnum í lokaumferðinni með sigri gegn Arthur Lucas og hefndi fyrir Davíð. Sá franski átti taktísk mistök í miðtaflinu og Vignir vann þó hann hafi kannski farið krýsuvíkurleið í úrvinnslunni.

Benedikt laut í dúk í lokaumferðinni gegn sterkum FM sem nuddaði hann jafnt og þétt í miðtaflinu.

Davíð átti auðvelda skák í lokaumferðinni. Andstæðingur Davíðs lék af sér í 17. leik og gafst bara strax upp í stað þess að berjast skiptamun undir.

Vignir endaði með 6 vinninga í 8. sæti en hóf leik númer 4 í stigaröðinni. Vignir tapar 4,4 elóstigum á mótinu.

Benedikt Briem endaði með 5 vinninga í 34. sæti en hóf leik í 38. sæti. Benedikt hækkar um 34,4 elóstig.

Davíð Kolka endaði með 5 vinninga einnig í 40. sæti en hóf leik í 55. sæti. Davíð hækkar um 50 elóstig fyrir sinn árangur.

- Auglýsing -