Benedikt Stefánsson að tafli á Skákþinginu. Mynd: Heimasíða SA.

Fyrsta umferð 89. Skákþings Akureyrar var tefld í gær. Alls mættu 12 keppendur til leiks, sem var mjög eftir væntingum. Eins og stundum áður átti bæði ungir og aldnir sína fulltrúa og nálgast aldursmunur yngsta og elsta keppanda 70 ár! Reyndar telfdu þessir fulltrúar kynslóðanna saman í fyrstu umferð. En úrslitin:

Markús-Benedikt   0-1
Sigþór-Smári      0-1
Baldur-Sigurður   0-1
Eymundur-Goði     1/2
Stefán-Björgvin   1-0
Karl og Valur Darri sátu hjá.

Af einstökum skákum er það að segja að viðureignum Stefáns og Björgvins og Sigþórs og Smára lauk fremur snemma með sigri hinna lífsreyndu. Skák Baldurs og Sigurðar var mjög spennandi þar sem sá síðarnefndi missti niður vænlegt tafl gegn ákafri sókn Baldurs. Um tíma var mát eða drottningarvinningur í boði fyrir ungmennið, en hann sá ekki að sér og skipti upp í tvísýnt endatafl, sem hann tapaði að lokum, enda við fyrrverandi sýslumann að eiga.

Þá var komið að Eymundi og Goða Svarfdal, (sem er jafnaldri Baldurs, enn í grunnskóla). Þar fékk sá síðarnefndi snemma prýðisgóða stöðu fyrir tilstilli franskrar varnar. Eymundur sá þá þann kost nænstan að efna til hörkulegrar kóngssóknar og náði eftir mannsfórn að tryggja sér þráskák og jafntefli.

Þá var aðeins eftir skák fráfarandi Akureyrarmeistara, Markúsar Orra; gegn Hörgdælingnum harðskeytta, Bendikt Bægisárjarli. Það var vegist á og lengi óvíst hvernig fara myndi. Akureyrarmeistarinn langði mikið undir en sá Hörgdælski kom með öflugt mótbragð fór líka í sókn. Þá saxaðist mjög á tíma Markúsar. En skákin hélt áfram að vera æsispennandi. Þegar Bensi virtist vera að ná haustaki á Markúsi, náði sá síðarnefndi að fórna skiptamun og fékk að launum tvo hættulega frelsingja. Að endingu var það þó öflug gagnsókn Bægisár-Bensa með tveimur hrókum gegn kóngi Markúsar sem réði úrslitum (ásamt tímahraki þess síðarnefnda). Satt að segja óvænt úrslit og baráttan um meistaratitilinn opin sem aldrei fyrr!

Önnur umferð fer fram á miðvikudag og hefst kl. 18.00.

Þá munu þessir leiða saman fáka sína:

Smári og Sigurður
Benedikt og Stefán
Goði og Karl
Valur Darri og Eymundur
Sigþór og Markús
Baldur og Björgvin sitja yfir.

- Auglýsing -