Hotel Stockholm North Young Talents mótaröðin hélt áfram í dag með tvöfaldri umferð, og íslensku fulltrúarnir okkar, Aleksandr Domalchuk-Jónasson og Vignir Vatnar Stefánsson, héldu áfram baráttunni í sínum flokkum.


♟️ Vignir með strembinn dag

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson byrjaði daginn með jafntefli gegn GM Vitaly Sivuk (2505). Skákin var stutt jafntefli og spurning hvort Vignir eigi eitthvað eftir að sjá eftir friðarpípum með hvítt þegar líður á mótið!?

Í seinni skákinni mætti Vignir norska alþjóðlega meistaranum Tor Fredrik Kaasen (2472). Þeir höfðu mætt í fyrstu umferð þar sem Vignir hafði unnið, en nú snerust hlutirnir við – Noregur náði fram hefndum og Vignir þurfti að sætta sig við tap í þessari skák.

Upp kom a3 afbrigðið gegn Najdorf sem Vignir hefur mælt með á síðunni sinni. Sá norski virtist nokkuð klár í slaginn og hafði betur í mikilli stöðubaráttu í miðtaflinu.

Vignir situr því eftir daginn með 3 vinninga af 6 mögulegum.


🔥 Sasha tekur sigur og jafntefli

Aleksandr Domalchuk-Jónasson hélt sínu striki í IM-flokknum.

Í 5. umferð sigraði hann CM Melvin Ral Lustig (2237) frá Svíþjóð stöðubaráttuskák. Oft þarf ekki mikið til og líklegast var peðaflakk hvíts með h-peð sitt nóg til að snúa taflinu. Peðið varð veikt og kostaði á endanum örvæntingarfullar aðgerðir af hvíts hálfu sem kostuðu frekara liðstap.


Í 6. umferð mætti Sasha öðrum heimamanni, Pratyush Tripathi (2011) og eftir hörku baráttu endaði skákin með jafntefli. Tripathi er efnilegur skákmaður en jafnfram nokkuð fullorðinslegur í útliti. Það fullorðinn að ónefndur skákstjóri á Norðurlandamótinu í Borgarnesi fyrr á árinu ku hafa spurt hann hvort sonur hans tæki líka þátt í hraðskákmótinu sem fór fram eitt kvöldið! Öllum til heilla heyrði hann ekki spurninguna! En já Tripathi tefldi allavega eins og hann væri vel sjóaður skákmaður og ef eitthvað er hafði hann örlítið betra tafl með biskupaparið í mið- og endataflinu.

Aleksandr er því með 4 vinninga af 6 og er í góðri stöðu í sínum flokki, efstur ásamt tveimur öðrum.


Við fylgjumst áfram með íslensku keppendunum í Stokkhólmi og óskum þeim góðs gengis þegar lokaumferðir nálgast! 🇮🇸♟️

  • Skákir á lichess GM | IM
  • Mótið á chess-results GM | IM
- Auglýsing -