Ljubljana Chess Festival heldur áfram í Slóveníu en íslensku fulltrúarnir okkar Bragi Þorfinnsson, Björn Þorfinnsson og Sigurbjörn Hermannsson létu til sín taka í fjórðu umferðinni og sigldu heim 2,5 vinning úr 3 skákum. Það mesta síðan í fyrstu umferðinni!
🔥 IM Björn Þorfinnsson – vinnur aftur og er að hitna!
Björn Þorfinnsson hafði hvítt gegn ítölskum CM Giovanni Marchesich (2212). Björn virðist búa yfir einhverjum seiðkrafti því honum tókst að telja andstæðingi sínum trú um að hann hefði leikið peði af sér í byrjuninni þegar það var fjarri sannleikanum! Björn drap hér af miklu öryggi á f6, 9.Bxf6 Bxf6
… og lék 10.Dh5 vissulega tvöföld árás á d5 og h7 en eftir 10…g6 11.Dxd5 sá sá ítalski ekki rétta leikinn.
Hér hefði 11…Bxd4 haldið jafnvægi í liðsafla en sá ítalski lék 11…De7? og tapaði peði fyrir lítið. Hann náði að setja ákveðin praktísk vandamál fyrir Björn en á endanum taldi liðsaflinn og Björn náði sér í góðan sigur, meðbyr og sjálfstraust!
Þetta var önnur vinningsskák Björns á mótinu og hann er því með 3 vinninga af 4.
♟️ GM Bragi Þorfinnsson – traustur en vantar slagkraft
Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson mættir í fjórðu umferð indverska skákmanninum Nilsu Pattnayak (2146). Bragi hafði hvítt og fékk einstaklega þægilegt miðtafl og hafði tögl og haldir í skákinni. Tölvumatið hrundi úr næstum +3 í nánast núll með 26. leik hvíts og Bragi sá sig knúinn til að þráleika. Klaufalegt og einhverja stríðsgæfu hefur vantað hjá Braga það sem af er móti.
Bragi er þar með með 2,5 vinninga af 4 og vill vafalítið gera betur.
🔍 Sigurbjörn Hermannsson – vinningur og næsta skák mikilvæg!
Sigurbjörn Hermannsson lagði að velli stigalágan heimamann í fjórðu umferð. Skyldusigur fyrir Sigurbjörn og næsta skák er mikilvæg upp á gott gengi á mótinu!
Sigurbjörn er með 2 vinninga af 4 og nokkurn veginn á pari.
🕵️ Hvað gerist næst?
Í fimmtu umferð tefla íslendingarnir sem hér segir:
- Björn hefur svart gegn Das Sriansh (2278) frá Indlandi. Ótrúlegt en satt mættust þeir einnig á Reykjavik Open og Björn hyggur á hefndir fyrir hrakfarirnar þar!
-
Bragi hefur svart gegn enn einum kandídata-meistaranum (CM), nú hinum úkraínska Oleksandr Zhukovsky (2147)
-
Sigurbjörn fær hvítt gegn Hollendingum David Slagter (2186).
Við fylgjumst áfram með mótinu hér á Skak.is! 💪♟️🇮🇸
















