Iðunn Helgadóttir að tafli

Landsliðskonan Iðunn Helgadóttir (1876) náði ekki að enda nógu vel í B-flokki á opna mótinu í Zadar í Krótatíu. 93 keppendur tefldu í B-flokki og var Iðunn númer 21 í stigaröðinni. Helgi Pétur Gunanrsson (1804), faðir Iðunnar, var einnig með á mótinu og var númer 37 í stigaröð.

Iðunn stóð ágætlega eftir sex umferðir með 4 vinninga og mætti Tomas Wilgosz í 7. umferðinni með svörtu og endaði sú skák með jafntefli. Næstu tvær skákir töpuðust. Sú fyrri var gegn Kristijan Bajlo (2167) sem var annar stigahæstur í flokknum en hitt gegn Jan Nipac (1769) frá Slóveníu.

Endaði Iðunn því með 4,5 vinning og stigagróðinn hvarf á endasprettinum og lokaniðurstaðan -2 elóstig.

Helgi Pétur náði í einn vinning úr síðustu þremur og endaði líka með 4,5 vinning.

- Auglýsing -