Önnur umferð EM taflfélaga hefst kl. 12:15. Eins og fram kom í frétt ritstjóra í gær voru öll úrslit eftir bókinni.
Í dag jafnast leikar. Þrjár íslenskar sveitir verða í beinni. Taflfélag Reykjavíkur sem mætir Werder Bremen, Breiðablik sem mætir MTK Budapest og Fjölnir sem etja kappi við Cero Intvest Nitra.
Viðureignir dagsins





Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:
- Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
- Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
- Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
- Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
- Dímon (nr. 99)
- Auk þess teflir Óskar Bjarnason fyrir klúbb frá Lúxemborg.
Í kvennaflokki eru kvennalið sem teflir undir nafni Íslands
- Ísland (15)
Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er býsna magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur)
- ECU-TV (beinar útsendingar)
- Auglýsing -















