Hið vinsæla Evrópumeistaramót taflfélaga (European Chess Club Cup) hófst í dag í Ródos á Grikklandi, þar sem 122 sveitir mættu til leiks – sem er metþátttaka í sögu mótsins.
Í umferð dagsins tefldu þrjár íslenskar sveitir niður fyrir sig en hinar tefldu við sterkari andstæðinga.
Taflfélag Reykjavíkur
TR mætti velskri sveit, Cardiff Chess Club. Fyrirfram hefði mátt búast við auðveldum sigri hér en þrátt fyrir fínar lokatölur bitu Cardiff menn vel frá sér. Gauti setti tóninn og vann sína skák fyrstur manna og Aleksandr fylgdi fljótlega eftir og vann en skákin hans virkaði nokkuð flókin lengst af. Næst komu þrjú jafntefli og stóðu TR-ingar lengi vel illa í mörgum þeirra skáka en menn náðu að redda sér. Gummi kláraði sína skák svo skemmtilega eftir að hafa haft verra tafl í byrjuninni, menn að tefla sig í gang!
Lokin hjá Gumma:
Hér lék Gummi 1.Dxg4! og skildi hrókinn eftir 1…Dxe1+ 2.Kh2 en svartur er varnarlaus þar sem 2…Hg8 er smekklega svarað með 3.Rf6! og Arabíumáti!
Skákdeild Breiðabliks
Blikarnir fengu viðráðanlegan andstæiðng og lokatölur urðu 4,5-1,5. Stephan Briem tapaði sinni skák og jafntefli hjá Birki Ísak, báðir með svörtu mennina.
Fjölnir
Fjölnismenn unnu fínan 5-1 sigur. Jón Trausti lentri í langri og erfiðri vörn en hélt sinni skák en aðrar skákir unnust. Hættulegur andstæðingur þar sem um var að ræða mikið af ungum krökkum og greinilega margir sýnd veiði og allt það!
Sf. Akureyrar
Akureyri fékk fallbyssusveit með Gelfand í fararbroddi. Lokatölur 0-6. Jóhann tapaði gegn Gelfand á fyrsta borði. Stefán Steingrímur átti fína skák að eigin sögn en útsendingin á hans borði klikkaði. Áskell var að tefla traust en lék af sér í jafnri stöðu í 26. leik.
Dímon

Dímon komust ágætlega frá viðureign við erfiða sænska sveit. Ólafur Örn Ólafsson náði sigri í sinni fyrstu tilraun á EM taflfélaga. Magnús Pálmi pressaði stíft en Joar Ostlund náði að verjast peði undir í drottningarendatafli.
2. umferð fer fram á morgun og þá fá Fjölnir, TR og Breiðablik öll sterka andstæðinga!
Ísland í kvennaflokki

Íslenska liðið vakti stórathygli í kvennaflokki. Það leit út fyrir að íslenska liðið væri að ná ótrúlegum úrslitum, skv. beinum útsendingum var íslenska liðið með unnið á nánast öllum borðum!

Þrátt fyrir fína spretti í skákunum reyndist þetta vera villa í útsendingunni þar sem borðum var snúið við eða voru vitlaus. Íslenka liðið tapaði 0-4 gegn gríðarlega þéttri sveit með 2300+ skákkonur á öllum borðum. Tinna átti fína skák og var lengi vel jöfn staða en sú azerska var sterkari djúpt inni í endataflinu.
Í kvennaflokki vakti ungstirnið Bodhana Sivanandan athygli með því að gjörsamlega pakka Maríu Muzychuk saman!

Á morgun mætir kvennaliðið Ratnicki Ippotis, grískri sveit með stelpur með 1500 stig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur)
- ECU-TV (beinar útsendingar)
Mótið fer fram í opnum flokki (102 sveitir) og kvennaflokki (20 sveitir) og stendur yfir í sjö umferðir frá 19. til 25. október.
Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:
- Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
- Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
- Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
- Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
- Dímon (nr. 99)
Í kvennaflokki er kvennalið sem teflir undir nafni Íslands
- Ísland (15)
Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.

















