Evrópumeistaramót taflfélaga (European Chess Club Cup) hefst í dag í Ródos á Grikklandi, þar sem 122 sveitir mæta til leiks – sem er metþátttaka í sögu mótsins. Mótið fer fram í opnum flokki (102 sveitir) og kvennaflokki (20 sveitir) og stendur yfir í sjö umferðir frá 19. til 25. október.
Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:
- Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
- Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
- Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
- Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
- Dímon (nr. 99)
Í kvennaflokki eru kvennalið sem teflir undir nafni Íslands
- Ísland (15)
Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.
Viðureignir dagsins






- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur)
- ECU-TV (beinar útsendingar)
- Auglýsing -















