Fyrri hluti Atskákmóts Akureyrar var tefldur, 4. desember, þrjár umferðir af sjö. Átján keppendur mætti til leiks og mótið hið fjörugasta. Að loknum þremur umferðum er Símon sá eini sem hefur unnið allar sínar skákir. Þeir Rúnar Sigurpálsson og Áskell Örn Kárason koma næstir með 2,5 vinning eftir innbyrðis jafntefli, en fimm skákmenn hafa tvo vinninga; Karl Egill Steingrímsson, Sigþór Árni Sigurgeirsson, Smári Ólafsson, Nökkvi Már Valsson og Sigurður Eiríksson. Mótið heldur áfram á sunnudag þegar fjórar síðustu umferðirnar verða tefldar. Stöðuna og viðureignir fjórðu umferðar má sjá á chess-results. Í fjórðu umferð eigast m.a. við tveir stigahæstu keppendurnir, Rúnar og Símon, svo og Sigurður og Áskell.
- Auglýsing -
















