Úsbekski stórmeistarinn Nodirbek Abdusattorov tryggði sér glæsilegan sigur á London Chess Classic 2025. Hann lauk keppni með 7½ af 9 mögulegum, heilum tveimur vinningum á undan aðalskeppinautnum Alireza Firouzja og sýndi fáheyrða yfirburði á mótinu. Margir hérlendis halda upp á Úsbekann unga eftir skemmtilegan framgang hans á Heimsmeistaramótinu í Slembiskák sem fram fór hér á landi 2023.

Mótið fór fram í Emirates-leikvanginum, heimavelli Arsenal, þar sem tíu stórmeistarar tefldu allir við alla með klassískum tímamörkum og 50 þúsund punda heildarverðlaunasjóði.

Frá varfærinni byrjun í sex sigra röð

Abdusattorov hóf mótið með skapandi en stuttri skák gegn heimamanninum Gawain Jones, þar sem hann fór í áhættusama drottningar­fórn en sættist svo á þráleik.

Eftir þá varfærnu byrjun breyttist gírinn algjörlega. Ungi Úsbekinn vann sex skákir í röð og tók frumkvæðið í mótinu. Hann lagði að velli þá Abhimanyu Mishra, Nikita Vitiugov, Michael Adams, Nikolas Theodorou, Sam Shankland og svo Luke McShan þar til loks Firouzja stöðvaði sigurgönguna þegar þeir skildu jafnir í áttundu umferð. Jafntefli var svo niðurstaðan gegn Eljanov í lokaumferðinni en árangurinn glæsilegur,  lauk mótinu með 7½/9 og hélt tveggja stiga forskoti á Firouzja sem endaði í öðru sæti. Skákirnar voru jafnan baráttuskákir – en tilfinningin var sú að þegar á reyndi væri Abdusattorov alltaf hálfu skrefi á undan.

Kynslóðaskipti á toppnum í skákinni

Sigurinn í London styrkir stöðu Abdusattorovs sem eins áhugaverðasta unga stórmeistara heims. Á árinu hefur hann þegar vakið athygli með sterkum árangri í stórmótum og nú bætir hann við sig sigri í einu virtasta opna lokaða móti Bretlands.

Fyrir Firouzja er annað sætið aftur á móti ákveðin áminning: þegar hann hittir keppinauta sína í toppbaráttunni í háformi, eins og Abdusattorov var í London, þarf hann sjálfur að vera í sínu besta form til að eiga séns.

Fyrir skákáhugamenn – hvort sem er á Íslandi eða annars staðar – var þetta mót skýr áminning um að ný kynslóð stórmeistara er að taka yfir. Nafn Nodirbeks Abdusattorovs verður ábyggilega ofarlega á blaði þegar rætt er um mögulega framtíðaráskorendur heimsmeistaratitilsins á næstu árum þó honum hafi mistekist að komast á Áskorendamótið 2026. Landi hans Sindarov komst áfram en Abdusattorov minnti á að hann er enn fremstur Úsbekana.

- Auglýsing -