Þann 20 janúar fór fram dómaranámskeið sem haldið var af Skáksambandi Íslands. Fór það fram í sal Skákskóla Íslands og voru tólf aðilar sem sóttu námskeiðið. Þetta námskeið var grunn námskeið skákdómara sem gaf landsdómara réttindi (e. National arbiter). Umsjón með námskeiðinu var í höndum Daða Ómarssonar.
Farið var yfir helstu skákreglur og þá þætti sem reynir á skákstjórahlutverkið. Farið var yfir praktísk mál og úrlausn þeirra og út frá því sköpuðust líflegar umræður.
Eftirtaldir aðilar sátu námskeiðið og fengu landsdómara titilinn
- Arnar Breki Grettisson
- Arnar Ingi Njarðarson
- Dagur Andri Friðgeirsson
- Daníel Hákon Friðgeirsson
- Halldór Pálmi Bjarkason
- Harald Björnsson
- Iðunn Helgadóttir
- Ingi Hafliði Guðjónsson
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Jón Arnljótsson
- Stefán Arnalds
- Veturliði Þór Stefánsson
Umræður hafa verið um námskeið í Swiss manager pörunarforritinu sem verður auglýst fljótlega
Næsta dómara námskeið (FIDE-arbiter) verður haldið helgina 20.-22. febrúar. Umsjón með því hefur Omar Salama.
- Auglýsing -















