Fyrsta barnaskákmót Skákdeildar KR á nýju ári fór fram laugardaginn 18. janúar sl. Þátttakendur voru 74 sem jafnar þann fjölda sem mest hefur áður verið. Keppt var tveimur flokkum 1.– 3. bekk og 4. – 9. bekk og tefldar sjö umferðir. Eins og á öllum mótum sem haldin hafa verið á þessum vetri þá var eldri flokkurinn fjölmennari með 42 keppendum á meðan 32 voru í yngri flokki. Þrátt fyrir spádóma um annað þá jókst þessi munur frá því í nóvember og er svipaður og í upphafi vetrar. Ágæt tilþrif sáust á mótinu og virðast margir keppendur vera í góðri æfingu.

Katrín Ósk Tómasdóttir vann eldri flokkinn örugglega með fullu húsi 7v af sjö mögulegum. Katrín sýndi þolimæði í skákum sínum og hafði það umfram andstæðinga sína í mótinu að geta aukið hraðann þegar leið á skákina og tíminn var farinn að minnka en jafnframt haldið ágætum gæðum á taflmennskunni. Við það jókst pressan á mótherjann þangað til eitthvað gaf sig og hún innbyrti hvern vinninginn á fætur öðrum. Annar var Þorvaldur Orri Haraldsson með 6v og náði þar með sínum fyrstu verðlaunum á þessum mótum. Ljóst er því að Þorvaldur er í mikilli framför. Í þriðja sæti var svo Rakshat Murali Kristna með 5,5v.

Í yngri flokki voru Helgi Fannar Óðinsson og Jón Fenrir Ragnarsson efstir og jafnir með 6v. Helgi Fannar vann innbyrðis viðureign þeirra í fjórðu umferð en tapaði fyrir Sævari Svan Valdimarssyni í fimmtu umferð. Grípa varð því til sigaútreiknings og hafði Helgi Fannar þar betur og vann því annað mótið í röð en Jón Fenrir varð annar og náði í fyrsta sinn verðlaunasæti á þessum mótum. Þriðji var svo Venkata Abinay Chowdary Dasari með 5,5v og nældi einnig í sín fyrstu verðlaun á þessum mótum.

Skákdeild KR þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum þeim aðstoðuðu við mótið fyrir þeirra framlag. Nánari upplýsingar um öll úrslit eru hér fyrir neðan ásamt tengli inn á myndasíðu Skáksambandsins:

- Auglýsing -