Skólaskákmót Austurlands 2026 fer fram sunnudaginn 19. apríl og er teflt í Egilsstaðaskóla.
Mótið hefst kl. 13:00 og teflt er í þremur einstaklingsflokkum:
1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Tefldar verða 7 umferðir og umhugsunartími verður 5 mín + 2 sek á hverja skák.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi.
Reiknað er með að mótshaldið taki um 2 klst.
Mótið er opið fyrir alla grunnskólanemendur á Austurlandi.
Athugið þó að hámarki þrír frá hverjum skóla í hverjum flokki.
Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.
Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Ólafsvík 9.-10. maí
Skráningarfrestur er til kl. 16, föstudaginn 17. apríl.
Skráning
Þegar skráðir keppendur
- Auglýsing -















