Landsmótið í skólaskák fer fram dagana 9. og 10. maí í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.

Teflt verður í þremur tólf manna flokkum eftir round-robin kerfi, þar sem allir tefla við alla.
Flokkarnir eru: 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

Landsmótsmeistararnir 2025: Pétur Úlfar, Mikael Bjarki og Birkir.

Dagskrá:

  • Laugardagurinn 9. maí 1.-6. umferð  Kl. 14:00-19:00
    • Keppendum boðið í pizzuveislu
  •  Sunnudagurinn 10. maí 7.-11. umferð Kl. 11:00-16:00

Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir aukakeppni um titilinn með hraðskáktímamörkum, 5 mín. á skák + 3 sek. á hvern leik. Aukakeppni fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu ef hægt er.  Um önnur sæti gilda oddastig. 

Verðlaun í elsta flokki:

  1. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
  2. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
  3. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.

Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr. 

Verðlaun í yngri flokkum

  1. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
  2. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
  3. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.

Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

Aðeins er hægt að vinna til einna verðlauna.

Engin þátttökugjöld en keppendur þurfa að koma sér sjálfir á staðinn.
Hægt er að óska eftir ferðastyrk ef ferðalagið er meira en 1.000 km samtals í akstri.

Keppendum stendur til boða að gista í Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík.

Landsmótsstjóri 2026 verður Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is).

- Auglýsing -