Vorhefti tímaritsins Skákar er komið út. Við afsökum seinkunina. Í næstu viku verður póstlagt til þeirra sem hafa skráða heimsendingu. Aðrir geta sótt blöðin í Taflfélag Reykjavíkur þegar þar eru mót og í Miðgarð Garðabæ samhliða Skákþingi Íslands.

Um að gera að líta við í 6. umferð Íslandsmótsins á morgun og sækja sitt eintak!

Einnig mun ritstjóri heimsækja skákdeild KR, Taflfélag Garðabæjar og Æsi, með blöðin. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og skrá ekki heimsendingu en eru vanir að sækja sitt eintak á Íslandsmóti skákfélaga, er velkomið að senda ritstjóra tölvupóst, á gauti.pj@hotmail.com

Sama verð, sömu gæði. 60 stappfullar blaðsíður af skákefni, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Höfundar eru úr röðum stórmeistara, alþjóðlegra meistara, Fide-meistara, og loks – algjörra meistara!

Áskrifendur fá rukkun í heimabanka í þessum mánuði.

Verðskrá: 3500kr hefðbundin áskrift, 4500kr ásamt heimsendingu. (1000 króna póstburðargjald bætist við). 7000kr. styrktarlína.

Takk fyrir að halda útgáfunni gangandi kæru áskrifendur, og takk fyrir skrifin kæru höfundar!

Gerast áskrifandi

5. maí 2026 með góðri kveðju,

Gauti Páll Jónsson, ritstjóri

- Auglýsing -