Vignir Vatnar heldur skákmót í samstarfi við EpicBet og Nínu þriðjudaginn 19. maí kl. 19:30 á Nínu Bar, Hverfisgötu 20.
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og verður mótið reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Athygli er vakin á því að aðeins 50 keppendur geta tekið þátt og er mótið eingöngu ætlað 18 ára og eldri.
Þátttökugjald er 2.000 kr. og bjór fylgir með skráningu. Áskrifendur að vignirvatnar.is greiða ekkert þátttökugjald.
Frábær tilboð verða á barnum á meðan mótinu stendur.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin auk verðlauna fyrir efsta sæti í eftirfarandi flokkum:
- U-2000 Elo
- U-1800 Elo
- Stigalausir
Skráningu lýkur í hádeginu á þriðjudeginum.
Skráningarform
Skráðir keppendur
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband á netfangið:
vignirvatnar.is@gmail.com
Hlökkum til að sjá ykkur!

















