Að loknum sjö umferðum í Áskorendaflokki Skákþings Íslands er tvíburar í efsta sætinu! Annar tvíburabróðirinn Björn Hólm Birkisson lagði Óskar Víking Davíðsson að velli á efsta borði í umferð kvöldsins. Á sama tíma lagði Bárður Örn Birkisson Akureyringinn unga Markús Orra Óskarsson að velli og tyllti sér á toppinn með bróður sínum. Gauti Páll náði líka að vinna sína skák og hefur 5 vinninga ásamt Óskar Víkingi og Pétri Úlfari Ernissyni!
Björn lagði Óskar Víking að velli á efsta borði. Óskar hefur komið ferskur inn í mótið og teflt vel. Í skák kvöldsins lenti hann þó í erfiðri vörn og hvítur hrifsaði e5-reitinn góða í grjótgarðinum sem vill oft verða veikur ef ekki er haldið rétt á spöðunum. Varnir svarts voru þó nálægt því að halda en að lokum sprakk stíflan og Björn náði vinnings-taktík í lokin.
Bárður náði kennslubókar-svíðingi í biskupaendatafli. Þétt taflmennska hjá Bárði sem Markús réði ekki við að þessu sinni.
Gauti náði mikilvægum sigri gegn Adam. Gauti fórnaði manni fyrir fínustu bætur en Adam hugði ekki nægjanlega vel að kóngsstöðu sinni á lykilaugnabliki.
Loks blandaði Pétur Úlfar Ernisson sér í toppbaráttuna með sigri á Sigurbirni Hermannssyni. Eftir Najdorf-byrjun náði Pétur ansi skemmtilegu samspili manna sinna á drottningarvængnum og staða hans varð yfirgnæfandi. Vel teflt hjá Pétri!
Helstu úrslit 7. umferðar
CM Björn Hólm Birkisson – Óskar Víkingur Davíðsson 1–0
FM Bárður Örn Birkisson – Markús Orri Óskarsson 1–0
CM Adam Ómarsson – Gauti Páll Jónsson 0–1
Pétur Úlfar Ernisson – Sigurbjörn Hermannsson 1–0
FM Sigurbjörn Björnsson – Markús Orri Jóhannsson ½–½
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – Mikael Jóhann Karlsson ½–½
Birkir Hallmundarson – Josef Ómarsson ½–½
Haukur Víðis Leósson – Guðmundur Peng Sveinsson 1–0
Mikið um skemmtilegar skákir og úrslit. Pétur Úlfar með tvö góð úrslit í röð og margir að láta til sín taka.
Staða efstu manna eftir 7 umferðir
CM Björn Hólm Birkisson – 5,5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 5,5 vinningar
Gauti Páll Jónsson – 5 vinningar
Óskar Víkingur Davíðsson – 5 vinningar
Pétur Úlfar Ernisson – 5 vinningar
Markús Orri Óskarsson – 4,5 vinningar
CM Adam Ómarsson – 4,5 vinningar
Sigurbjörn Hermannsson – 4 vinningarr
Að loknum sjö umferðum eru tvíburarnir orðnir efstir. Þrír koma í humátt á eftir hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Helstu viðureignir 8. umferðar
FM Bárður Örn Birkisson – CM Björn Hólm Birkisson
Óskar Víkingur Davíðsson – Pétur Úlfar Ernisson
Gauti Páll Jónsson – Markús Orri Óskarsson
Josef Ómarsson – CM Adam Ómarsson
Tvíburarnir mætast…hver lætur til sín taka í skákunum á hinum borðunum? Athyglisvert að tvær bræðrabyltur verða á efstu borðunum á morgun!!
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)
Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.
















