Simon Williams að tafli í Hörpu.

Á morgun, sunnudag, fer fram Arena-mót á Lichess, skipulagt af ChessPublishing.com. Vefurinn er að hluta í eigu Íslandsvinarins og stórmeistarans Simon Williams, betur þekktum sem GingerGM. Sérstök verðlaun verða veitt efsta íslenska keppandanum: ársáskrift að ChessPublishing.com.

Chesspublishing.com er rótgróinn vefur og hefur verið til staðar í yfir tvo áratugi. Upphaflega var það enski stórmeistarinn Tony Kosten sem byrjaði með vefinn. Vefurinn hefur lengi verið vel geymt leyndarmál sterkra skákmanna sem hafa fundið góðar byrjanahugmyndir þar í gegnum árin, þar á meðal greinarhöfundur!

Vefnum hefur alltaf verið skipt í nokkra hluta eftir byrjunum, 12 mismunandi flokkar og eru sterkir skákmenn, yfirleitt stórmeistarar sem sjá um hvern flokk. Í hverjum mánuði kemur „update“ frá umsjónarmanni hvers flokks þar sem farið er yfir skákir og nýjar hugmyndir í hverjum flokki. Til dæmis hefur Frakka-sérfræðingurinn John Watson séð um franska flokkinn nánast frá upphafi og ýmsir sterkir skákmenn sjá um aðra flokka, t.d. stórmeistarinn Michael Roiz sem sér um opna sikileyjarvörn.

Simon og félagar hafa uppfært útlitið á vefnum og bætt ýmsu skemmtilegu við. Meðal annars er komin gervigreind (Harry!) sem getur hjálpað til við undirbúning fyrir skákir. Harry er alltaf að bæta sig en er strax orðinn mjög hjálplegur. Nafn andstæðings er slegið inn og Harry flettir honum upp og greinir veikleika og hvar andstæðingurinn skorar illa. Það sem er mjög gott er að Harry stingur einnig oft upp á greinum til að skoða og býr þar að greinum í öllum flokkunum 12 sem spanna yfir tvo áratugi!! Hægt er að fletta upp gömlum greinum og fjöldinn af skýrðum skákum sem hafa safnast upp í gegnum árin er falinn fjársjóður fyrir metnaðarfulla skákmenn!

Það er ekki annað hægt er mæla með þátttöku fyrir sterka skákmenn. Verðlaunin fyrir efsta Íslending er eitt ár af áskrift á síðuna!

Mótið hefst á morgun sunnudag klukkan 14:00! Niðurtalning í mótið má líka sjá á mótssíðunni (tengill að neðan!)

Streymi verður jafnframt frá mótinu, Simon mun tefla og lýsa á Twitch og YouTube síðum sínum.

Til að vera gjaldgengur til verðlauna verður að skrá sig á forminu hér!

Tengill á mótið sjálft á lichess

- Auglýsing -