Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson hefur byrjað vel á opnu móti á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez en 2. umferð var tefld í dag. Hannes lagði andstæðing sinn að velli í dag og hefur unnið báðar skákir sínar til þessa á mótinu.Hann hóf mótið með sigri gegn stigalægri andstæðingi.

Hannes hafði hvítt gegn Andrei Negrean (2366) FIDE-meistara frá Rúmeníu. Upp kom broddgaltarafbrigði og Hannes hélt vel á spöðunum með hvítu, hélt góðri stjórn á stöðunni og vann skiptamun í miðtaflinu. Úrvinnslan gekk vel og fínn sigur hjá Hannesi.

Hannes mun hafa svart gegn slóvenska alþjóðlega meistaranum Tim Janzelj (2394) í þriðju umferðinni á morgun.

Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!

- Auglýsing -