Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram, þriðjudaginn 25. ágúst á Chess.com og hefjast kl. 19.30.
Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com.
Tengillinn á mótið er væntanlegur. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 3+2. Fjórir efstu + efsta konan fá keppnisrétt í úrslitum.
Mótsstig Chess.com gildir séu menn jafnir að vinningum. Ef Chess.com styttir mótið v/fjölda þátttakanda þá gildir sú stytting. Í stuttu máli sagt – allar reglur Chess.com gilda.
Það er nauðsynlegt að skrá rétt nafn í skráningarformið til að eiga möguleika að fá sæti í úrslitunum. Þeir sem hafa þegar keppnisrétt í úrslitunum mega ekki tefla í undanrásunum.
- Skráningarform
- Þegar skráðir keppendur
- Tengill á mótið á chess.com (Mótið opnar 1 klst. áður en það hefst)
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.
Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Sjálf 16 manna úrslitin hefjast 30. ágúst.
Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.
- Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2026 (varamenn úr undanrásunum núna)
- Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1. ágúst 2026 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
- Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 25. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
- Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 25. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 15. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 125.000 kr.
- 75.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.
Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.
Dagskrá
| Dags. | Vikudagur | Netskák |
| 30-Aug-2026 | Sunday | Netskák (16) |
| 6-Sep-2026 | Sunday | Netskák (16) |
| 13-Sep-2026 | Sunday | Netskák (16) |
| 27-Sep-2026 | Sunday | Netskák (16) |
| 4-Oct-2026 | Sunday | Netskák (8) |
| 25-Oct-2026 | Sunday | Netskák (8) |
| 1-Nov-2026 | Sunday | Netskák (4) |
| 15-Nov-2026 | Sunday | Netskák (2) |
Eftirtaldir hafa keppnisrétt
| Hvernig | ||
| 1 | GM Vignir Vatnar Stefánsson | Átta manna |
| 2 | IM Björn Þorfinnsson | Átta manna |
| 3 | FM Ingvar Þór Jóhannesson | Átta manna |
| 4 | FM Jón Kristinn Þorgeirsson | Átta manna |
| 5 | IM Dagur Ragnarsson | Átta manna |
| 6 | FM Símon Þórhallsson | Átta manna |
| 7 | FM Bárður Örn Birkisson | Átta manna |
| 8 | IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson | Átta manna |
| 9 | GM Hannes Hlífar Stefánsson | Skákstig |
| 10 | IM Hilmir Freyr Heimisson | Skákstig |
| 11 | GM Jóhann Hjartarson | Skákstig |
| 12 | Undanrásir | Undanrásir |
| 13 | Undanrásir | Undanrásir |
| 14 | Undanrásir | Undanrásir |
| 15 | Undanrásir | Undanrásir |
| 16 | Kona | Kona-undanrásir |


















