Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026.

Mótsupplýsingar:
Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12).
Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10).
Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður
1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. október 19:00 TR
Aðrar umferðir (úrvalsdeild + allar aðrar deildir) Föstudagur 9. október 19:00 MH
Laugardagur 10. október 11:00 og 17:30 MH
Sunnudagur 11. október 11:00 MH
Tímamörk:
  • Úrvalsdeild: 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leiki, auk 15 mínútna eftir 40 leiki, með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
  • Aðrar deildir: 90 mínútur á skákina með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
Þátttökugjöld 2026-27
Ferðakostnaður:
Skáksamband Íslands endurgreiðir ferðakostnað innanlands fyrir keppendur sem koma langt að. Allt að 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar, en 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og 1. deild, gegn framvísun kvittana. Enginn ferðakostnaður er endurgreiddur fyrir aðrar deildir.
Skráning:
Skráningarfrestur:
  • Úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild: 15. september 2026
  • deild: 1. október 2026
Félagaskipti:
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 18. september 2026 kl. 23:59. Skákmenn án félags og alþjóðlegra kappskákstiga eru undanþegnir þessum fresti.
Síðari hluti mótsins:
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 er áætlaður dagana 5.–8. mars 2027 (endanleg dagsetning og staðsetning verða staðfest síðar).
MÓTSREGLUR
  • Mæta þarf innan 30 mínútna eftir að umferð hefst. Annars er dæmt tap.
  • Öll notkun rafeindatækja (símar, snjallúr, heyrnartól) er stranglega bönnuð í skáksal.
  • Liðstjórum er óheimilt að hafa afskipti af einstökum skákum á meðan teflt er (samkvæmt FIDE-reglum).
Nánari upplýsingar
- Auglýsing -