Haustmót SA, sem er meistaramót félagsins verður nú með sama sniði og í fyrra; undanrásir og úrslitakeppni. Undanrásirnar hefjast í næstu viku.

Undanrásir verða með atskáksniði, alls sex umferðir (tvær á dag):
10. september kl. 18.30
11. september kl. 18.30
12. september kl. 13.00
Hér er fyrirkomulag nokkuð frjálslegt og geta keppendur valið um það að tefla allar umferðirnar eða bara hluta þeirra. Þeir sem það vilja (og geta) tefla sem flestar skákir en þeir sem aðeins vilja spreyta sig einn dag eða tvo eru líka velkomnir. Umhugsunartími verður 15 mín með 10 sek viðbótartíma fyrir hverja skák.

Úrslit: Þeir sex keppendur sem fá flesta vinninga í undanrásunum tefla svo til úrslita um meistaratitil félagsins, alls fimm kappskákir. Úrslitakeppnin hefst fimmtudaginn 17. september kl. 18.30. Ef þátttaka (og áhugi) er fyrir hendi verður líka teflt í b-úrslitum.

Þátttaka er öllum heimil, en aðeins félagsmaður getur hampað skákmeistaratitlinum. Ekki verður innheimt þátttökugjald fyrir undanrásirnar, en í úrslitum er gjaldið kr. 3500 fyrir félagsmenn en kr. 4500 fyrir aðra. Ekkert mótsgjald fyrir börnin.

- Auglýsing -