Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500) hefur staðið sig afar vel á alþjóðlegu móti sem gangi er í Árhúsum í Danmörku. Eftir 7 umferðir hefur Henrik hlotið 5½ vinning og er í 1.-2. sæti ásamt danska alþjóðlega meistaranum Jesper Søndergård Thybo (2557).
Um er að ræða 10 manna lokað mót sem haldið verður áfram í dag og á morgun. Í dag teflir Henrik við alþjóðlega meistarann Bjørn Møller Ochsner (2502).
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 17)
- Úrslitaþjónusta
- Auglýsing -















