Hannes að tafli.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2538) gerði jafntefli við hina indversku R. Vaishali (2376) í áttundu umferð Sunway Sitges-mótins í Barcelona. Sú er systir Praggnanandhaa indverska undrabarnsins og er sjálf stórmeistari kvenna. Þau verða bæði meðal keppenda á Reykjavíkurskákmótinu 2020.

Guðmundur Kjartansson (2448) tapaði fyrir franska stórmeistaranum Maxime Lagarde (2655). Báðir hafa þeir 4½ vinning.

- Auglýsing -