Sunway Sitges-mótinu lauk í dag í Barcelona. Ekki gekk vel hjá félögunum Hannesi Hlífari Stefánssyni (2538) og Guðmundi Kjartanssyni (2448) í lokaumferðum mótsins. Gummi vann K.N. Gopal (1840) en Hannes kaus að tefla ekki í lokaumferðinni.
Gummi hlaut 5½ í 10 umferðunum en Hannes hlaut 5 vinninga. Báðir lækka þeir á stigum fyrir frammistöðuna. Gummi um 3 stig en Hannes um 13 stig.
Úkraínski stórmeistarinn Anton Korobov (2668) sigraði á mótinu en hann hlaut 8½ vinning í umferðunum 10.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15:30 nema lokaumferðin)
- Chess-Results
- Auglýsing -
















