Magnús Carlsen (2865) er efstur með 10 vinninga að loknum fyrstu 12 umferðunum á HM í hraðskák sem hófst í gær í Moskvu og lýkur reyndar í dag. Kateryna Lagno (2606) er efst á HM kvenna í hraðskák. Vinni Carlsen í dag verður hann þrefaldur heimsmeistari þ.e. í kapp-, at- og hraðskák. Taflmennskan í dag hefst fyrr en vanalega að kl. 11.
Magnús lenti í lyfjaúrtaki í gær og varð alls ekki ánægður. Í frásögn Peter Doggers á Chess.com segir svo
However, the day had an unpleasant ending for the champion. While signing autographs for fans, his mood completely changed when the chairman of FIDE’s Medical Commission, Marape Marape of Botswana, approached Carlsen for a doping test.
Knowing that it can take more than an hour, Carlsen first asked if it was possible to do the next day. When the answer was negative, initially he angrily walked away (screams were heard) to the VIP room. Later he returned and underwent the test after all.
Staða efstu manna í opnum flokki eftir 12 umferðir af 21
Stöðuna í heild sinni má finna á Chess-Results.
HM kvenna í hraðskák

Í kvennaflokki er Kataryna Lagno (2606) efst með með 8 vinninga eftir 9 umferðir. Fjórar skákkonur eru í 2.-5. sæti með 7 vinninga.
Staða efstu manna í kvennaflokki eftir 19 umferðir af 17
Stöðuna í heild sinni má finna á Chess-Results.
Nánar um mótin á Chess.com.
HM í hraðskák beinni
Hvernig er best að fylgjast með veislunni?
Allmargar leiðir eru til þess. Ritstjóri getur bent á eftirfarandi leiðir
- NRK – Beinar útsendingar eru á NRK. Hafa verður í huga að öll athyglin á NRK fer á Magnús Carlsen en útsendingarnar eru senn skemmtilegar og líflegar.
- Heimasíða mótsins og Chess24 – mjög góðar skýringar. Þær sömu og eru í youtube-tenglinum hér að ofan. Í umsjón Leko, Miro og Skripchenko
- Chess.com. Þar eru öflugir menn á ferðinni en skákskýringar eru í höndum stórmeistarana Yasser Seirawan og Robert Hess
- Chess-Results – úrslit og staða
Viltu tefla sjálfur?
Skáklíf landans er komið í frí í ár! Minnt er á Skákþing Reykjavíkur sem hefst 5. janúar nk.
Norðmanmenn geta teflt fyrr því Nýársmót Skákfélags Akureyrar fer fram á nýársdag.














