Skráning
Setja í mitt dagatal
Hvenær:
27. febrúar, 2020 – 3. mars, 2020 allan daginn
2020-02-27T00:00:00+00:00
2020-03-04T00:00:00+00:00
Hvar:
Sveinatunga
Garðatorg
Garðabær
Ísland
Garðatorg
Garðabær
Ísland
Gjald:
Ókeypis

Íslandsmót kvenna 2020 fer fram í Sveinatungu, glæsilegum salarkynnum við Garðatorg í Garðabæ
Mótið fer fram 27. febrúar – 3. mars nk. Teflt verður í tveim flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2020. Hins vegar í áskorendaflokki. Hann er opin fyrir allar skákkonur sem ekki ná 1600 skákstigum.
Frí þátttökugjöld í báða flokka. Mótið er haldið í samvinnu Skáksambands Íslands og Taflfélag Garðabæjar.
Landsliðsflokkur kvenna
- Opinn fyrir allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Það má bæta við keppenda standi á stöku.
- Tefldar verða 5-7 umferðir. Nánara fyrirkomulag ákveðið þegar endanlegur keppendafjöldi liggur fyrir.
- Umferðir hefjast um kl. 18 á virkum dögum en fyrr um helgina. Mögulega verður einn tvöfaldur dagur
- Tímamörk verða 90+30 auk 30 mínútna eftir 40 leiki
- Skráningarfrestur er til 13. febrúar nk.
Verðlaun
- 100.000 kr.
- 60.000 kr.
- 40.000 kr.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunsætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Áskorendaflokkur kvenna
- Allar skákkonur með minna en 1600 skákstig hafa keppnisrétt.
- Tefldar verða 5-7 umferðir. Nánara fyrirkomulag ákveðið þegar endanlegur keppendafjöldi liggur fyrir.
- Umferðir hefjast um kl. 18 á virkum dögum en fyrr um helgina. Mögulega verður einn tvöfaldur dagur
- Tímamörk verða 60+30.
- Skráningarfrestur er til 20. febrúar.
Verðlaun
- Styrkur upp í ferðakostnað á mót erlendis 20.000 kr , frí þátttaka í áskorendaflokki Íslandsmótsins 2020 eða skákklukka og keppnisréttur í landsliðsflokk kvenna að ári
- Frí þátttaka í áskorendaflokki Íslandsmótsins 2020 eða skákklukka
- Frí þátttaka í áskorendaflokki Íslandsmótsins 2020 eða skákklukka
Skráning
- Auglýsing -










