Dagur að tafli í Kragaeyju. Mynd: Bjørn Berg Johansen

FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2400) situr þessa dagana að tafli á alþjóðlegu móti í Montreal í Kanada. Um er að tæða túrbó-mót, þ.e. 9 umferðir á 5 dögum. Fyrsta umferð mótsins fór fram í gær en frá 3.-6. mars verða tefldar tvær umferðir á dag.

Dagur gerði jafntefli við bandaríska alþjóðlega meistarann Raymond Kaufman (2281) í fyrstu umferð í gær.

Skák.is mun fylgjast með Degi í Kanada.

- Auglýsing -