Línur hafa heldur betur skýrst á Boðsmóti Magnúsar Carlsen sem þessa dagana fer fram á Chess24. Það liggur nánast fyrir hvaða fjórir skákmenn komast í úrslitakeppnina.
Ding Liren (2836) vann Ian Nepomniachtchi (2778) 2½-1½ og Fabiano Caruna (2773) hafði sigur á landa sínum Hikaru Nakamura (2829) eftir bráðabana.

Ding Liren, Hikaru Nakamura og Magnús Carlsen eru efstir með 11 stig. Caruana hefur 10 stig. Langt bil eru í næstu menn eða 5 stig og aðeins 6 stig í pottinum. Það virðist því nánast ráðið hverjir komast í úrslitakeppnina nema að eitthvað stórkostlegt gerist í lokaumferðunum tveimur.
Fyrri hluti sjöttu og næstsíðustu umferðar fer fram í dag. Carlsen mætir Nepo þar sem hinn síðarnefndi þarf nauðsynlega á sigri að halda til að eyja von um að komast í úrslitakeppnina. Í hinni viðureigninni mætast ungstirnið Alireza Firouzja (2703) og Anish Giri (2731).
Nánar á Chess24.
Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.
















