Íslandsmótið í netskák 2020 – BRIM-mótið fer fram á netþjóninum Chess.com, á morgun, miðvikudagskvöldið 29. apríl, kl. 19:30. Meðal skráðra keppenda eru stórmeistararnir: Bragi Þorfinnsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Þröstur Þórhallsson og alþjóðlegu meistararnir Arnar Erwin Gunnarsson, Áskell Örn Kárason, Björn Þorfinnsson, Davíð Kjartansson, Guðmundur Kjartansson og Jón Viktor Gunnarsson.

Ingvar Þór Jóhannesson verður með beina útsendingu á Skák.is meðan mótinu stendur fyrir skákáhugamenn. Útsendingin hefst kl. 19:15.

Opið er fyrir skráningu þar til kl. 19 á morgun. Til að skrá sig þarf að notast við form á forsíðu skak.is.

Fyrirkomulagið er þannig að fyrst tefla keppendur níu umferðir eftir svissneska kerfinu. Átta efstu keppendurnir tefla til úrslitakeppni með útsláttarkeppni sem hefst um 15 mínútnum síðar.

Listi yfir skráða keppendur

Nánari upplýsingar um mótið

Þátttökuréttur

Allir Íslendingar búsettir hérlendis og erlendis geta tekið þátt sem og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis.

Tímasetning

Mótið hefst miðvikudaginn, 29. apríl kl. 19:30.

Fyrirkomulag undankeppni

Teflt verður sama fyrirkomulagi og á Abu-Dhabi hraðskákmótinu á Chess.com sem haldið var fyrir skemmstu. Fyrst verða tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu. Stuðst verður við oddastigareglur Chess.com.

Átta efstu keppendurnir komast í sérstaka úrslitakeppni sem verður tefld í beinu framhaldi undankeppninnar.

Tímamörk eru 3+2

Fyrirkomulag útsláttarkeppni

Tefld verða 2ja skáka einvígi með tímamörkunum 3+2. Verði jafnt verður tefldur bráðabani (armageddon) þar sem hvítur hefur 5 mínútur en svartur 4 mínútur. Svörtum dugar jafnteflis til að komast áfram.

Skákreglur

Allar reglur skákþjónsins Chess.com gilda á mótinu. Enginn skákstjóri verður á mótinu.

Verðlaun

  1. 100.000
  2.   50.000
  3.   25.000
  4.   25.000

Skráning

Skráning fer fram á Skak.is. Til að skráning sé gild þarf að gefa upp fullt nafn, FIDE-númer (þeir sem ekki hafa slíkt setji inn 0) og notendaheiti á Chess.com.

Aðrar reglur

Bannað er að þiggja alla utanaðkomandi aðstoð á meðan mótinu fer fram. Chess.com mun fara yfir allar skákir mótsins með tilliti til alls svindls. Verðlaun verða ekki greidd út fyrr en þeirri yfirferð er lokið.

Sé það mat Chess.com að svindl hafi átt sér stað getur viðkomandi átt von á banni á Chess.com. Slík brot geta jafnframt hafa mögulegar afleiðingar varðandi þátttöku á mótum á Íslandi.

- Auglýsing -