112 Reykjavík
Ísland

Mótið fer fram sunnudaginn 24. maí í Rimaskóla. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Taflið hefst kl. 11 og ætti að vera lokið um kl. 15.
Hver skóli getur sent að hámarki tvær sveitir. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Í hverri sveit mega vera allt að tveir varamenn.
Þátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Frítt er fyrir landsbyggðarsveitir.
Veit verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar, verðlaun fyrir efstu b- sveit ásamt verðlaunum fyrir þrjár efstu sveitir af landsbyggðinni.
Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.
Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fyrirhugað er að fari fram í Danmörku í október nk.
Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 9 þann 22. maí. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.
Gerð er krafa til þess að aðeins einn liðsstjóri fylgi sveitum frá hverjum skóla.
Vegna takmarkana sem eru í gildi af hálfu stjórnvalda, þar sem meðal annars kemur fram að keppnir barna á grunnskólaaldri eigi að vera án áhorfenda, biðjum við forráðamenn að skilja við börn sín og sækja við inngang húsnæðisins.
Sjoppa, þar sem boðið er upp á greiðslur með posa, verður á staðnum fyrir krakkana.
Forráðamenn geta fylgst með úrslitum á vefnum og fjöldi mynda verða teknar og birtar að móti loknu á skak.is.










