Það urðu heldur betur tíðindi þegar Hikaru Nakamura lagði sjálfan heimsmeistarann Magnús Carlsen í loka stutt-einvígi þeirra í gær. Það átti enginn von á þessu eftir heimsmeistarinn hafði unnið fyrsta einvígið 3-0.
Fyrstu skákinni í gær lauk með jafntefli. Naka vann aðra skákina en sá norski kom til baka með sigur í þriðju skákinni. Fjórðu skákinni lauk með jafntefli og því var tefldur bráðabani. Þar vann Hikaru sigur eftir að Carlsen hafði leikið illa af sér.
Nakamura mætir Daniil Dubov í úrslitum sem hefjast á morgun. Frídagur er í dag vegna Center Boðsmótsins.
Tefldar eru fjórar atskákir (15+10). Verði jafnt verður tefldur bráðabani.
Nánar má lesa um mótið á Chess24.
- Auglýsing -

















