Heimsmeistarinn Magnús Carlsen vann sigur á Ögurskákmótinu sem lauk á LiChess í gær. Mótið var haldið á vegum skákklúbbsins í Saint Louis. Magnús Carlsen vann Fabiano Caruana í afar spennandi úrslitaeinvígi.

Áður hafði Carlsen unnið öruggan sigur á Levon Aronian í undanúrslitum og Caruana unnið nauman sigur á Wesley So.

Um fyrirkomulag mótsins 

Átta skákmenn tóku þátt og teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi. Telfdar voru tólf skákir í hverju einvígi með tímamörkunum 10+5.

Skákir nr. 5-6 og 11-12 og er hins vegar skokallaðar ögurskákir (clutch games). Skákir 5 og 6 gilda tvöfalt og skákir 11 og 12 gilda þrefalt. Það eru því 18 vinningar í boði í hverju einvígi.

Nánar um mótið á Chess24.

- Auglýsing -