Undankeppninni á Chessable Masters lauk í gær á Chess24. Þátt tóku 12 skákmenn í tveimur flokkum. Tefld var tvöföld umferð og komumst fjórir efstu áfram úr hvorum flokki.
Lokastaðan í a-flokki
Magnús Carlsen og Vladislav Artemiev urðu efstir og jafnir. Hikaru Nakamura og Alexander Grischuk fylgja þeim í átta manna úrslit. Daniil Dubov sat eftir þrátt fyrir að vera efstur þegar aðeins tveim umferðum var ólokið. Var með óhagstæð oddastig.

Nánar á Chess24.
Lokastaðan í b-flokki
Anish Giri vann sigur í b-flokki. Ding Liren og Ian Nepomniachtchi urðu í 2.-3. sæti. Fabiano Caruana var síðustur inn í átta manna úrslitin. Athygli vekur að Maxime Vachier-Lagrave varð neðstur. Hann hefur engan veginn náð sér á strik í netskákinni.

Nánar á Chess24.
Frídagur er í dag en á morgun hefjast átta manna úrslit. Þar er stuðst við sama kerfi og Lindores Abby-mótinu. Teflt er þrjú 4 skáka atskákeinvígi. Sá sem vinnur tvö þeirra kemst áfram á í undanúrslit.
Beinar útsendingar – hefjast kl. 14
















