Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til þátttöku í sumarmóti KR í Listagarðinum við Selvatn á Nesjavallaleið á fimmtudaginn kemur.
Mótið er öllum opið en takmarkast við 40 keppendur að hámarki. Það hefst með sérstakri opnunardagskrá kl. 15 og stendur fram eftir kvöldi. Tefldar verða 11 umferðir með 10 mín. umht. Góð verðlaun og viðurkenningar.
Hátíðakvöldverðarhlaðborð undir beru lofti kl. 18.30 Boðið upp á kaffi, kruðerí, svaladrykki meðan á móti stendur og skemmtilegheit.
Þátttökugjald er kr. 12.000 og rennur allur ágóði af mótshaldinu til eflingar unglingastarfi Skákdeildar KR, sem rekur starfsemi sína allt árið um kring. Væntanlegir keppendur eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta komu sína með greiðslu þátttökugjaldsins inn á bankareikning 115-26-47077 kt. 470776-0139.
















