19:30!
Ekkert bræðravíg í kvöld: Aron Þór og Alexander Oliver Mai kláruðu snemma – jafntefli samið á þriðja borði eftir að sömu stöðu kom upp þrisvar.
Sigurður J. Sigurðsson leiðréttir hvað hann sagði í gær: „Mér var slátrað“ og hann sér til þess að það endurtekur sig ekki og vinnur Arnar Loga Kjartansson.
Benedikt Briem er í miklu óstuði eftir tapið í gærkvöldi, kemur sér upp vænlegri stöðu, er kærulaus og tapar hratt á móti Ingvari Wu Skarphéðinssyni.
19:45
Hröð úrslit nú: Elvar Már Sigurðsson vinnur Bjart Þórisson, Gunnar Erik Guðmundsson vinnur Jóhann Helga Hreinsson, Matthías Björgvin Kjartansson vinnur Birki Hallmundarson. Tómas Möller teflir miklu betri í dag enn í gær og leggur Markús Orra Jóhannsson að velli.
20:15 Iðunn Helgadóttir nær að leggja Arnar Frey Orrason. Jóhann Ragnarsson fer illa með kóngsstöðu Adams Omarssonar á sjötta borði og vinnur.
Óttar Örn Bergmann Sigfússon vinnur mann af Loga Sigurðssyni. En það eru glufur í kóngsstöðu Óttar og hann kýs að gefa manninn til baka til að forðast þráskák. Er Logi að snú taflinu við?
20:30 Stöðubaráttann er í algleymi á fyrsta borði það sem Oliver Bewersdorff er með hvít á Pétur Pálma Harðarson. Það er langt frá sama fjörið og var í gær á efsta borði – og það er frekar rólegt yfir mannskapinn almennt miðað við ærslaganginn á skákborðunum í gær.
20:45 Arnar Milutin Heiðarsson er komið með kverkatak á kóng Ulkers Gasanovu á fimmta borði. Ulker vill ekki láta máta sig með hrók, riddara og peði og gefst frekar upp. Logi er kominn með mátsókn og Óttar Örn gefst upp.
21:00 Bara fjögur borð eftir 1, 2, 4 og 8. Kristján Örn Elíasson er að tefla við Lenku P. á öðru borði. Lenka er með rýmra tafl og lakari tíma. Nær Kristján Örn öðru bragði í kvöld eða verður stórmeistarinn of sterkur?

Benedikt Þórisson og Ólafur Gísli Jónsson eru komnir langt inn í miðtaflið á fjórða borði. Ólafur Gísli er skiptamun yfir en Benedikt er með sterkt valdað peð á e5. Mun peðið duga til að halda jafnvægi? Nei Ólafur Gísli nær hrók af andstæðingum sínum og þó Benedikt sé með máthótun í borði þá mun það ekki duga til.
Óskar Maggason vinnur Mikael Bjarka Heiðarsson á áttunda borði.
Stöðubaráttan á fyrsta borði leysist upp í jafntefli – frekar blóðlaust í kvöld.
Benedikt er göldróttur – drottninginn er komin í sókn – ein eftir með einu peði á e6 og með opna kóngsstöðu mun það færa honum jafntefli heilan hrók undir – þetta er óvænt. Ólafur Gísli hugsar – enn hann getur varla sloppið úr þráskákinni. Jafntefli samið!
21:30 Kristján Örn og Lenka ein eftir. Staðan rýmri hjá Lenku – hún pressar.
22:00 Endatafl hjá Kristjáni og Lenku. Skákin er að snúast – Kristján með frípeð í a-línunni. Kannski er hann aðeins of snöggur að ýta það áfram – erfitt endatafl – enn sennilega í jafnvægi. Riddarinn stöðvar frípeð andstæðingsins báðum megin.
22:30 Terror balance – og jafntefli samið! 10 jafnir og efstir með 3 vinninga.

















