Fjórða umferð Haustmótsins var tefld í gærkveldi. Þar mættust m.a. tveir efstu menn mótsins og hafði sá stigahærri sigur í mikilli baráttuskák sem stóð í hartnær fjóra tíma. Öll úrslit:
Andri-Sigurður 1-0
Sigþór-Smári 0-1
Stefán-Markús 1-0
Jökull Máni-Brimir 1-0
Tobias-Alexía 1-0
Emil-Gunnar Logi 0-1
Andri – sem hefur titil að verja frá því í fyrra – er nú einn efstur með fullt hús vinninga. Þeir Sigurður, Smári og Stefán koma næstir með þrjá vinninga.
Þessi tefla saman í fimmtu umferð Haustmótsins sem hefst á sunnudag kl. 13.
Andri og Tobias
Sigurður og Stefán
Smári og Jökull Máni
Markús og Sigþór
Alexía og Emil
Brimir og Gunnar Logi
Öll úrslit og stöðuna má sjá á chess-results.
- Auglýsing -















