Vignir Vatnar Stefánsson (2313) og Hilmir Freyr Heimisson (2352) töpuðu báðir í sjöundu umferð alþjóðlega unglingamótsins í Uppsölum. Vignir tapaði fyrir sænska alþjóðlega meistaranum Milton Pantzar (2410) og Hilmir fyrir landa hans Axel Falkevall (2121)
Vignir hefur 4,5 vinninga og er í 6.-11. sæti. Hilmir hefur 4 vinninga og er í 12.-18. sæti.
Tvær síðustu umferðir dagsins fara fram á morgun. Í fyrri umferð dagsins sem hefst kl. 9 teflir Vignir við sænska FIDE-meistarann Hampus Sörensen (2393) og Hilmir við landa hans Adrian Söderström (2168). Síðari umferðin á morgun og lokaumferð mótsins hefst kl. 15.
Bein lýsing Fionu Steil-Antoni og Jesper Hall frá áttundu og næstsíðustu umferð hefst um kl. 11. Nils Grandelius verður með Fionu í lokaumferðinni og hefst lýsingin þá í þá kl. 15.

















