Vignir Vatnar Stefánsson (2313) og Hilmir Freyr Heimisson (2352) enduðu báðir með 5 vinninga á alþjóðlega unglingamótinu í Uppsölum sem endaði í gær með tveimur umferðum.
Þeir töpuðu báðir í áttundu og síðustu umferð. Vignir fyrir sænska FIDE-meistaranum Hampus Sörensen (2393) en Hilmir fyrir Svíanum Adrian Söderström (2168). Betur gekk í lokaumferðinni því þá vann Hilmir Tékkann Jachym Nemec (2246) en Vignir gerði jafntefli við Tékkann Adam Frank (2129).
Mótshaldið gekk vel hjá Svíunum en það var mikil áskorun á standa fyrir slíkum viðburði á Kóróna-tímum.
- Auglýsing -
















