Henrik á vettvangi. Mynd: Mads Boe.

Fimmta umferð alþjóðlega mótsins í Árósum í Danmörku fór fram í gær. Henrik Danielsen (2517) gerði jafntefli en Hilmir Freyr Heimisson (2318) tapaði.

 

Henrik hefur 3 vinninga og er í fimmta sæti. Hilmir hefur 2½ vinning og er í sjötta sæti. Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 10 og 16. Stjúpfeðgarnir mætast í síðari umferð dagsins.

 

Sjá umfjöllun um mótið á heimasíðu danska skáksambandsins.

Mótið fer fram 29. nóvember – 5. desember. Tíu keppendur tefla, allir við alla.

- Auglýsing -