Íslandsmótið í atskák – undankeppni

    0
    1403
    Hvenær:
    26. desember, 2020 @ 13:00 – 17:00
    2020-12-26T13:00:00+00:00
    2020-12-26T17:00:00+00:00
    Hvar:
    Tornelo
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Íslandsmótið í atskák - undankeppni @ Tornelo

    slandsmótið í atskák fer fram á Tornelo-skákþjóninum 26. og 27. desember nk. Á annan dag jóla (laugardagur) verða tefld 7 umferða undankeppni þar sem sjö efstu menn komast í útsláttarkeppni sem tefld verður á þriðja í jólum (sunnudagur). Þar bætist einnig í hóp keppenda Íslandsmeistarinn í atskák, Guðmundur Kjartansson.

    UNDANKEPPNIN

    Teflt á Tornelo (tengill á mót) – innskráningar eða nýskráningar þörf

    Hefst laugardaginn, 26. desember kl. 13:00.

    Sjö umferðir eftir svissneska kerfinu.

    Tímamörk verða 10+3.

    Sjö efstu eftir oddastigaútreikning* komast í útsláttarkeppni. Birt lokastaða í Chess-Results gildir.

    Keppendur þurfa að vera á Zoom (hljóði og mynd) allan tímann. Annars geta keppendur fyrirgert rétti sínum á að komast í útsláttarkeppnina.

    Engin þátttökugjöld!

    Skráningafrestur er til kl. 11, 26. desember.

    ÚRSLITAKEPPNI

    Átta keppendur taka þátt. Íslandsmeistarinn í atskák 2019 tekur rásnúmerið 1 en að öðru leyti taka keppendur rásnúmer í samræmi við úrslit í undankeppninni. Sá efsti nr. 2 o.s.frv.

    Í átta manna úrslitum mætast 1-8, 2-7, 3-6 og 4-5. Í undanúrslitum mætast sigurvegari í viðureign 1-8 sigurvegaranum í viðureign 4-5. Dregið verður um liti í fyrstu skák úrslitaviðureigna í lok undankeppni.

    Keppendur þurfa að vera á Zoom (hljóði og mynd) allan tímann og deila skjá. Annars geta keppendur fyrirgert rétti sínum á verðlaunum.

    Tefldar verður 2 atskákir með tímamörkunum 10+3. Verði jafnt verður tefldur bráðabani**.

    Verðlaun

    1. 100.000 kr.
    2.   50.000 kr.
    3.   25.000 kr.
    4.   25.000 kr.
    5. Bókaverðlaun***
    6. Bókaverðlaun
    7. Bókaverðlaun
    8. Bókaverðlaun

    Veitt verða aukaverðlaun (10.000 kr. inneign hjá Heimilstækjum eða Tölvulistanum) fyrir bestan árangur í eftirfarandi flokkum

    • Kvennaflokkur
    • Öldungaflokkur (+65)
    • Unglingaflokkur (u16)
    • Unglingaflokkur (u12)
    • Stigaverðlaun (2001-2200)
    • Undir 2000

    Þar sem atskákstig eru fremur ómarktæk hérlendis verður miðað við kappskákstig í stigaverðlaunum. Sömuleiðis verður notast við kappskákstig við pörun í undankeppninni.

    Nánari mótsreglur****

    —————————

    *Oddastig

    1. Bucholz Cut 1
    2. Bucholz
    3. Innbyrðis úrslit
    4. Flestar unnar skákir
    5. Hlutkesti

    **Bráðabani

    Hvítur hefur 5 mínútur gegn 4 mínútum svarts. Svörtum dugar jafnteflis til sigurs til að komast áfram. Sá sem er með lægra rásnúmer ræður hvort hann hafi hvítt eða svart.

    *** Bókarverðlaun (valkostir)

    ****Nánari mótsreglur

    • Athugið að vera búnir að tengjast við Zoom eigi síðar en kl. 12:40 báða dagana.
    • Skákstjóri getur sett klukkur í gang einni mínútu eftir að umferð hefur sett í gang – hafi keppendur ekki sjálfir hafið taflmennsku.
    • Menn bera ábyrgð á eigin nettengingum og því ef þeir missa samband við netið eða Tornelo. Klukkan verður ekki stöðvuð í slíkum tilvikum nema að skákstjóri ákveði annað
    • Tekið verður 10 mínútna hlé eftir fjórar umferðir.
    • Skilyrði fyrir þátttöku: Íslenskur ríkisborgararéttur eða búseta á Íslandi.
    - Auglýsing -