Undankeppni EM taflfélaga í netskák – kvennaflokki fer fram um helgina. Tvö íslensk skákfélög, Skákfélagið Huginn og Skákdeild Fjölnis, taka þátt í mótinu. Flestir íslensku fulltrúanna tefla í húsnæði Skákskóla Íslands.
Flestar sterkustu skákkonur Evrópu taka þátt í mótinu!
Lið Hugins sem teflir í c-riðli skipa
- Lenka Ptácníková (2130)
- Hallgerður Helga Þorsteinsóttir (2009)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935)
- Elsa María Kristínardóttir (1837)
- Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (1984)
Lið Hugins er sjöunda sterkasta af átta liðum. Sterkasta liðið er hið rússneska UGRA en það skipa meðal annars rússnesku landsliðskonurnar Natalija Pogonina og Olga Gyria.
- Nánar á Chess-Results.
- Beinar útsendingar á Tornelo.
Lið Fjölnis teflir í b-riðli og er það veikast átta liða. Lið Fjölnis skipa
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (1843)
- Hrund Hauksdóttir (1819)
- Lisseth Acevedo Mendez (1845)
- Nansý Davíðsdóttir (1895)
- Sigríður Björg Helgadóttir (1641)
Í f-riðli tekur meðal Kyiv-skákklúbburinn þátt og fyrir þann klúbb tefla meðal annars Muzychuk-systurnar, Maria og Anna sem og Anna Ushenina.
- Nánar á Chess-Results.
- Beinar útsendingar á Tornelo
Tvö efstu liðin úr hverjum flokki komast í úrslitakeppni sem fram fer á mánu- og þriðjudag.
Nánar um mótið á heimasíðu ECU.


















