Umf. Fjölnir er fjölgreinafélag sem velur afreksfólk allra deilda í lok hvers árs. Að þessu sinni valdi Skákdeildin þau Emilíu Emblu B. Berglindardóttur sem skákkonu ársins og Sigurbjörn J. Björnsson í flokki skákmanna. Afhending viðurkenninganna fór fram við athöfn í íþróttamiðstöðinni Dalhúsum.
Sigurbjörn er Skákmeistari Reykjavíkur 2020, titil sem hann vann með miklum yfirburðum og einstakri frammistöðu, fullt hús 9 vinninga af 9.
Emilía Embla er yngst í hópi íslenskra framtíðarskákkvenna, nýkrýndur Íslandsmeistari stúlkna U8 og þegar farin að tefla með ungmennalandsliðum Íslands á Norðurlandamótum. Emilía Embla hóf sína taflmennsku á Laufásborg undir handleiðslu Omar Salama og hefur áfram tekið stöðugum framförum eftir að hún hóf nám við Rimaskóla.
Skákdeild Fjölnis óskar þeim Sigurbirni og Emilíu Emblu innilega til hamingju með árangurinn og viðurkenninguna.

















