
EM í hraðskák fór fram á Tornelo í gær. Fjórir íslenskir skákmenn tóku þátt í undankeppninni. Arnar E. Gunnarsson (2420) stóð sig þeirra og endaði með 7½ vinning í umferðunum 11. Hannes Hlífar Stefánsson (2536) hlaut 6½ vinning, Jóhann Hjartarson (2525) 5½ vinning og Helgi Áss Grétarsson (2440) 2½ vinning (hætti eftir sjö umferðir).
Lokastöðuna má finna á Chess-Results. Sextán efstu keppendurnir unnu sér keppnisrétt í útsláttarkeppni sem hefst í kvöld.
- Auglýsing -













